Jæja, ég held ég ætli bara að láta verða af því að blogga svona
einu sinni til tilbreytingar!! Er farin að fá bréf í massavís hvort
ég sé ekki alveg örugglega á lífi þar sem ekkert sjáist af mér né
heyrist í mér... 
Af mér er annars bara gott að frétta að vanda. Alveg feikinóg að
gera og svona en þannig á það nú líka að vera!
Síðustu dagar og
vikur hafa aðallega farið í skóla og blak en auðvitað er alltaf
hægt að gera eitthvað skemmtilegt á milli. Er búin að vera kenna
fyrir Gásu 2 daga í vikunni en það er hressandi að breyta
aðeins til! 
Vorum svo á Hvolsvelli um helgina, ég og Emil, með blakbúðir en
það var svaka þáttaka og rosa fjör, 30 manns á besta aldri,
mismunandi langt komnir í íþróttinni komu saman til að skemmta sér
og fá smá tilsögn, 3 2ja tíma æfingar á laugardeginum með
klukkutíma pásu á milli og 2&1/2 tíma æfing á sunnudeginum
+ mót þar sem spilaðir voru 9 umferðir með "félagsvistarkerfi."
Væri maður ekki til í að geta æft svona með meistaraflokkum, alveg
böns af fólki sem er til í að taka helgina í þetta!! 
Annars fórum við á Bó Halldórsson og sinfóníuhljómsveitina á
laugardeginum en það var ansi mögnuð skemmtun!! Ég vann nefnilega 2
miða í netleik hjá bylgjunni en hvort stykki kostaði ekki nema
8000-kall!!! Við vorum svo á 10. fremsta bekk, nokkurn veginn fyrir
miðju svo það var ekki amalegt!
Á sunnudeginum komum við svo við
hjá Óskari og Siggu á Selfossi og auðvitað var okkur boðið í svaka
fínan mat og alles!!
Og talandi um matarboð, þá fór ég ekki
nema í þrjú matarboð um síðustu helgi! Stjörnustrákarnir héldu
saman veislu á laugardeginum, tengdó var með veislu í
sunnudagshádeginu og Lalli og Íris toppuðu svo allt saman með
dúndurveislu á sunnudagskvöldið þar sem Gotti og Jóhanna voru að
flytja til Gautaborgar. Held ég hafi verið að borða fyrir alla
vikuna enda hafði ég eitthvað verið löt við það virku dagana. Það
er líka ekki á hverjum degi sem það líður yfir alla nema Karen í
heita pottinum eftir æfingu... hehe 
Átið var annars ekki alveg búið þar sem Rannveig átti afmæli á
mánudeginum og við Gunni og Jóhanna fórum með þeim mæðgum út að
borða. Hitti líka Soffíu fyrr á deginum þar sem ég komst því miður
ekki til að hitta IHS-arana kvöldið áður, hefði svo gjarnan viljað
það!!!
Það er nú annars svo mikið framundan að við Emil erum sko búin
að setja upp plan fram í júní þar sem búið er að setja inn leiki og
annað um helgar til að skipuleggja okkur aðeins, við eigum einmitt
eftir 2 lausar helgar fram að jólum... hehe
En það þýðir nú
samt ekki að það sé ekkert annað hægt að gera þessar uppteknu
helgar... Áttum annars að fara austur á haustmót um helgina en það
virðist vera að detta upp fyrir enda alveg ótrúlega léleg
þátttaka!!! Helgina þar á eftir erum við svo að fara vestur á
eyrina, hlakka mikið til þess en ég hlakka svo ekkert minna til
helgarinnar á eftir en þá er 4.U að fara að hittast og loksins að
ég geti mætt!!! 

Deildarkeppnin fer svo líka að bresta á en
einnig er "Kjaranstaðar-frænku-hittingur" núna í Okt.
Gása fer
svo vonandi að detta inn aftur á æfingar og auk þess kemur hinn
uppspilarinn líklega í næstu viku svo vonandi fara mætingarnar að
batna í næstu viku, erum alltaf bara 6-8 á æfingu en það eru aldrei
allar sem mæta í einu! Samt búið að vera geggjað skemmtilegt
undanfarið þótt maður sé nú stundum svolítið þreyttur á æfingum
eftir lyftingarnar!!!
Hlakka annars ekkert smá til að fara að
spila aftur!! ;o)
Held annars að þetta sé farið að verða ágætt í bili,
efast um að nokkur hafi lesið svona langt niður en þið getið
þá bara tekið þetta í pörtum því ef ég þekki mig rétt þá líður
eflaust einhver tími þangað til ég blogga næst... hehe 
"Túdilú" 